Vortímataka Breiðabliks, úrslit

19.05 2018 00:00 | ummæli

Fyrsta bikarmót í tímatöku 2018. 

Vortímataka Breiðabliks fór fram föstudaginn 18. maí, en þar var um að ræða fyrstu keppnina í bikarmótaröð í tímatöku. 25 keppendur voru skráðir, 18 karlar og 7 konur. Keppt var í þremur flokkum, elite + U23 flokki karla, elite + U23 flokki kvenna og junior-flokki karla. Keppnin fór fram á Krýsuvíkurvegi og var brautin 20 km löng.

Í kvennaflokki sigraði Ágústa Edda Björnsdóttir, Tindi á tímanum 00:32:44. Í öðru sæti var Karen Axelsdóttir, Tindi (00:34:20) og í þriðja sæti var Kristín Vala Matthíasdóttir, Breiðabliki (00:37:58).

Í karlaflokki sigraði Rúnar Örn Ágústsson, Breiðabliki, á tímanum 00:27:19. Í öðru sæti var Hákon Hrafn Sigurðsson, Breiðabliki (00:28:54) og í þriðja sæti var Eyjólfur Guðgeirsson, Tindi (00:29:30).

Í junior-flokki karla sigraði Eyþór Eiríksson, HFR á tímanum 00:34:14 og í öðru sæti var Agnar Örn Sigurðsson, HFR (00:34:58).

Heildarúrslit má finna á timataka.net.

 

 

Halldóra Kristinsdóttir

Ummæli

Aðrar fréttir

EM í fjallahjólreiðum og nóg framundan hjá Ingvari

12 ágúst kl: 00:00

Íslandsmeistarinn tekur þátt í fjölmörgum mótum í ágúst og september

Breytt úrslit í Íslandsmeistaramótinu í Cyclo Cross 2017

2 ágúst kl: 10:18

.

Íslandsmeistaramót í maraþonfjallahjólreiðum og fjallahjólreiðum 2018

22 júlí kl: 00:00

María Ögn Guðmundsdóttir og Ingvar Ómarsson eru tvöfaldir Íslandsmeistarar í fjallahjólreiðum.&nb

Arna keppir á heimsbikarmóti

5 júlí kl: 00:00

Arna Sigríður Albertsdóttir keppir á Paracycling Road World Cup.

Íslandsmót í tímatöku

2 júlí kl: 00:00

Rúnar Örn Ágústsson og Rannveig Anna Guicharnaud eru Íslandsmeistarar í tímatöku 2018.

Íslandsmót í götuhjólreiðum

2 júlí kl: 00:00

Ágústa Edda Björnsdóttir og Ingvar Ómarsson eru Íslandsmeistarar í götuhjólreiðum 2018.

Fjallabrun, Vífilsstaðahlíð

16 júní kl: 00:00

Úrslit í fyrsta bikarmóti 2018 í fjallabruni.

Cube Prologue 1 - Ráslisti

13 júní kl: 12:46

Hér er ráslisti kvöldsins. Númer og Flaga

Cervelo TT, úrslit

31 maí kl: 00:00

Úrslit í öðru bikarmótinu í tímatöku 2018.

Canon criterium mótaröðin – fyrsta umferð

25 maí kl: 00:00

.

Vortímataka Breiðabliks, úrslit

19 maí kl: 00:00

Fyrsta bikarmót í tímatöku 2018. 

Ingvar keppir í UCI World Cup í fjallahjólreiðum

19 maí kl: 00:00

Ingvar Ómarsson keppir 20. og 27. maí.

Krónan fjallahjólamót, úrslit

13 maí kl: 00:00

Úrslit úr öðru bikarmóti sumarsins í fjallahjólreiðum.

Jónas, Davíð og Rúnar í Enduro World Series

11 maí kl: 00:00

3. umferð EWS fer fram um helgina.

Reykjanesmót Nettó og 3N

10 maí kl: 00:00

Úrslit