Óskar Ómarsson sigraði í Landskeppninni 2014

24.08 2014 23:29 | ummæli

Aðstæður voru meira krefjandi í Hvalfirðinum í dag, í samanburði við aðstæður á Reykjanesi í blíðviðrinu í gær.

Fimm keppendur í karlaflokki tóku forystu snemma í keppninni, þeir Hafsteinn Ægir, bræðurnir Ingvar og Óskar, auk Helga Páls og Bjarna Garðars. Þeir héldu hópinn allt þar til innan við kílómeter var eftir í endamarkið. Fór svo að Ingvar hafði góðan sigur í endaspretti við keppinauta sína, Hafsteinn varð í öðru sæti og Helgi Páll í því þriðja. Óskar, sem hafði 15 sekúndna forskot á aðra keppendur í heildarkeppninni fyrir síðustu dagleið missti 14 sekúndur á hina fjóra og mátti því ekki tæpara standa að hann missti af sigri í heildarkeppninni.

Fjórar konur tóku þátt í þessari dagleið Landskeppninnar. Corinna leiddi keppnina lengi framan af, en góð samvinna systranna Sigrúnar og Vigdísar Hallgrímsdætra gerði þeim kleyft að saxa á forskot Corinnar og fara fram úr. Vigdís hafði betur í endaspretti og kom 19 sekúndum á undan systur sinni í mark.

Hjólamenn þakka öllum keppendum fyrir skemmtilega helgi og frábæra keppni, þar sem einungis fimm sekúndur skildu að fyrsta þrjá í heildarkeppni í opnum flokki karla. Viðureignin var lifandi og er liðstaktík greinilega farin að spila stærra hlutverk í hjólreiðakeppnum hér á landi. Það hljóta að teljast merki þess að sportið sé að þroskast og því ber að fagna.

Að lokinni verðlaunaafhendingu tilkynnti stjórn Hjólamanna að þeir hafi nú ákveðið að sleppa takinu á Landskeppninni og mun hún því ekki vera á keppnisdagskrá Hjólreiðasambandsins á næsta ári. Hún var upphaflega hugsuð sem landskeppni Íslands og Færeyja. Undanfarin ár hafa Færeyjingar verið afskaplega duglegir að heimsækja okkur til að taka þátt í keppninni, en Íslendingar ekki verið eins duglegir að heimsækja Færeyjar til að taka þátt í Færeyjatúrnum. Eftir vel heppnaðan fimm daga Færeyjatúr fyrr í sumar er skiljanlegt að þeim hafi ekki þótt eins eftirsóknarvert að taka þátt í tiltölulega litlum þriggja daga viðburði á Íslandi. Í kjölfar þessarar tilkynningar var orðið gefið frjálst og það rætt hvernig rækta mætti samband okkar við Færeyingana samhliða því að búa til enn stærri viðburð en þann sem Landskeppnin var. Svo það geti orðið, þurfa hjólreiðafélögin á landinu að sameinast um það verkefni. Það verður að teljast nokkuð spennandi verkefni.

Hér eru úrslit 3. umferðar Landskeppninnar: http://hjolamot.is/keppni/61
Hér eru úrslit í heildarkeppninni: http://hjolamot.is/motaradir/11/A/Karl

Hér eru myndir sem voru teknar í Landskeppninni í ár: https://www.flickr.com/photos/hjolamenn/sets/72157646104937279/

Síðast breytt þann 25. ágúst 2014 kl: 00:03 af

Ummæli

Aðrar fréttir

EM í fjallahjólreiðum og nóg framundan hjá Ingvari

12 ágúst kl: 00:00

Íslandsmeistarinn tekur þátt í fjölmörgum mótum í ágúst og september

Breytt úrslit í Íslandsmeistaramótinu í Cyclo Cross 2017

2 ágúst kl: 10:18

.

Íslandsmeistaramót í maraþonfjallahjólreiðum og fjallahjólreiðum 2018

22 júlí kl: 00:00

María Ögn Guðmundsdóttir og Ingvar Ómarsson eru tvöfaldir Íslandsmeistarar í fjallahjólreiðum.&nb

Arna keppir á heimsbikarmóti

5 júlí kl: 00:00

Arna Sigríður Albertsdóttir keppir á Paracycling Road World Cup.

Íslandsmót í tímatöku

2 júlí kl: 00:00

Rúnar Örn Ágústsson og Rannveig Anna Guicharnaud eru Íslandsmeistarar í tímatöku 2018.

Íslandsmót í götuhjólreiðum

2 júlí kl: 00:00

Ágústa Edda Björnsdóttir og Ingvar Ómarsson eru Íslandsmeistarar í götuhjólreiðum 2018.

Fjallabrun, Vífilsstaðahlíð

16 júní kl: 00:00

Úrslit í fyrsta bikarmóti 2018 í fjallabruni.

Cube Prologue 1 - Ráslisti

13 júní kl: 12:46

Hér er ráslisti kvöldsins. Númer og Flaga

Cervelo TT, úrslit

31 maí kl: 00:00

Úrslit í öðru bikarmótinu í tímatöku 2018.

Canon criterium mótaröðin – fyrsta umferð

25 maí kl: 00:00

.

Vortímataka Breiðabliks, úrslit

19 maí kl: 00:00

Fyrsta bikarmót í tímatöku 2018. 

Ingvar keppir í UCI World Cup í fjallahjólreiðum

19 maí kl: 00:00

Ingvar Ómarsson keppir 20. og 27. maí.

Krónan fjallahjólamót, úrslit

13 maí kl: 00:00

Úrslit úr öðru bikarmóti sumarsins í fjallahjólreiðum.

Jónas, Davíð og Rúnar í Enduro World Series

11 maí kl: 00:00

3. umferð EWS fer fram um helgina.

Reykjanesmót Nettó og 3N

10 maí kl: 00:00

Úrslit