EM í fjallahjólreiðum og nóg framundan hjá Ingvari
12 ágúst kl: 00:00Íslandsmeistarinn tekur þátt í fjölmörgum mótum í ágúst og september
26.04 2018 00:00
|
Úrslit úr fyrsta bikarmóti sumarsins 2018 í fjallahjólreiðum.
Fimmtudaginn 26. apríl hélt HFR fyrsta bikarmót sumarsins í fjallahjólreiðum, Morgunblaðshringinn. Alls mættu 42 keppendur til leiks og var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir voru mættir úr yngri flokkunum, en 16 keppendur á aldrinum 11-23 ára mættu til leiks. Hjólaður var hringur við Rauðavatn, sem var um 6,8 km langur. Meistaraflokkur karla og U23 ára karlar hjóluðu fjóra hringi, meistaraflokkur kvenna, junior flokkur karla og almenningsflokkur karla hjóluðu þrjá hringi, U17 ára drengir, U17 ára stúlkur og almenningsflokkur kvenna hjóluðu tvo hringi. U15 ára drengir, U15 ára stúlkur og U12 ára drengir hjóluðu einn hring.
Í meistaraflokki kvenna voru þrír keppendur skráðir. Halla Jónsdóttir, HFR, sigraði en hún kom í mark á tímanum 01:26:58. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, Tindi, var önnur á tímanum 01:27:16. Anna Kristín Pétursdóttir, HFR, lauk ekki keppni en hún missti hnakkinn snemma í keppninni og fær hrós fyrir að hafa hjólað heilan hring á hnakklausu hjóli!
Í meistaraflokki karla var keppnin hörð en þar voru hjólaðir 4 hringir. Þrettán voru mættir í brautina og eftir æsispennandi baráttu bar Ingvar Ómarsson, Breiðabliki, sigur úr býtum. Hann kom í mark á tímanum 01:17:55. Hafsteinn Ægir Geirsson, HFR, var annar á tímanum 01:18:13 og Bjarki Bjarnason, HFR, var í þriðja sæti á tímanum 01:22:06.
Í almenningsflokki kvenna sigraði Katrín Lilja Sigurðardóttir og Rúnar Pálmason sigraði í almenningsflokki karla. Guðni Freyr Arnarsson sigraði í U23 flokki karla. Í junior flokki karla sigraði Sæmundur Guðmundsson. Í U17 ára flokki stúlkna var Sara Júlíusdóttir fyrst í mark og Matthías Schou Matthíasson var fyrstur í flokki U17 ára drengja. Freyja Dís Benediktsdóttir var fyrst í flokki U15 ára stúlkna og Fannar Freyr Atlason var sigraði í flokki U15 ára drengja. Snorri Karel Friðjónsson var fyrstur í flokki U12 ára drengja.
Hér að neðan eru efstu þrjú sætin í hverjum flokki, en heildarúrslit og millitíma má sjá á vefsíðunni timataka.net.
Meistaraflokkur kvenna (elite) (3 hringir)
1. Halla Jónsdóttir, HFR (01:26:58)
2. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, Tindi (01:27:16)
3. Anna Kristín Pétursdóttir, HFR
Meistaraflokkur karla (elite) (4 hringir)
1. Ingvar Ómarsson, Breiðabliki (01:17:55)
2. Hafsteinn Ægir Geirsson, HFR (01:18:13)
3. Bjarki Bjarnason, HFR (01:22:06)
Almenningsflokkur kvenna (2 hringir)
1. Katrín Lilja Sigurðardóttir, HFR (01:02:40)
2. Daldís Ýr Guðmundsdóttir, HFR (01:03:59)
3. Erla Steinþórsdóttir, HFR (01:44:56)
Almenningsflokkur karla (3 hringir)
1. Rúnar Pálmason, HFR (01:17:31)
2. Bjarki Sigurjónsson, HFR (01:22:36)
3. Hörður Guðmundsson, Ægi (01:28:55)
U23 karlar (4 hringir)
1. Guðni Freyr Arnarsson, HFR (01:35:01)
Junior karlar (3 hringir)
1. Sæmundur Guðmundsson, HFR (01:13:14)
2. Dagur Eggertsson, Tindi (01:18:02)
3. Agnar Örn Sigurðarson, HFR (01:19:52)
U17 stúlkur (2 hringir)
1. Sara Júlíusdóttir, Tindi (01:05:10)
2. Natalía Erla Cassata, HFR (01:06:32)
3. Íris Arna Ingólfsdóttir, HFR (01:12:26)
U17 drengir (2 hringir)
1. Matthías Schou Matthíasson, HFR (00:53:07)
2. Steinar Þór Smári, HFR (01:02:28)
U15 stúlkur (1 hringur)
1. Freyja Dís Benediktsdóttir, HFR (00:50:29)
U15 drengir (1 hringur)
1. Fannar Freyr Atlason, Tindi (00:26:57)
2. Davíð Jónsson, HFR (00:29:44)
3. Breki Blær Rögnvaldsson, HFR (00:33:08)
U12 drengir (1 hringur)
1. Snorri Karel Friðjónsson, HFR (00:31:24)
Halldóra Kristinsdóttir
Síðast breytt þann 26. apríl 2018 kl: 23:37 af Halldóra Kristinsdóttir
Íslandsmeistarinn tekur þátt í fjölmörgum mótum í ágúst og september
María Ögn Guðmundsdóttir og Ingvar Ómarsson eru tvöfaldir Íslandsmeistarar í fjallahjólreiðum.&nb
Arna Sigríður Albertsdóttir keppir á Paracycling Road World Cup.
Rúnar Örn Ágústsson og Rannveig Anna Guicharnaud eru Íslandsmeistarar í tímatöku 2018.
Ágústa Edda Björnsdóttir og Ingvar Ómarsson eru Íslandsmeistarar í götuhjólreiðum 2018.
Ingvar Ómarsson keppir 20. og 27. maí.
Úrslit úr öðru bikarmóti sumarsins í fjallahjólreiðum.