Þessum viðburði er lokið
Dagsetning
1. okt 2020 - 3. okt 2020
Skipuleggjendur
WOW
KIA Gullhringurinn er umfangsmesta og ein vinsælasta og skemmtilegasta hjólreiðakeppni landsins. Keppnin er haldin á Laugarvatni ár hvert og hjólað um margar þekktustu náttúruperlur Íslands um leið og hjólað er um þekktustu söguslóðir þjóðarinnar, Skálholt, Bræðratungu svo ekki sé nú minnst á Þingvelli.
Mottó KIA Gullhringsins er “Allir hjóla, allir vinna og allir velkomnir” og er hægt að velja sér vegalengd eftir getu hvers og eins úr þþremur mismunandi keppnisstigum. Allt þekktasta hjólreiðafólk landsins hefur hjólað KIA Gullhringinn og það sem skemmtilegra er að nýliðar í sportinu hafa notað KIA Gullhringinn sem fyrstu keppnina sína og þannig formlega innkomu sína í sportið.
Keppnin er haldin annan laugardag í júlí ár hvert og safnast keppendur saman á Laugarvatni yfir daginn og eiga skemmtilegan dag en ræsing keppninnar er kl 19:00 í samráði við Vegagerðina og Lögreglu. Klukkutíma fyrir ræsingu eða kl 18:00 hjóla keppendur að Menntaskólanum á Laugarvatni þar sem haldinn er brautarfundur þar sem farið er yfir stöðu brautar og hvað ber að hafa í huga og hugsanlega varast. Í framhaldi af því eru keppendur í öllum stigunum ræstir með stuttu millibili frá kl 19:00.
Ræsing hefst klukkan 19:00 og hjólað er inn í sumarnóttina. Hjólað er að kvöldlagi til þess að umferðarþungi trufli keppendur sem minnst og um leið að keppendur trufli almenna umferð sem minnst.
Þegar keppendur koma í mark er öllum keppendum boðið í grillveislu og í Fontana laugarnar á meðan að húsrúm leyfir. Þeir sem ekki komast að í Fontana eiga inni gjafabréfið sitt og geta nýtt það í allt að eitt ár frá keppni.
Verðlauna afhending er um kl 22:30 undir berum himni ef veður leyfir. Annars inni í íþróttamiðstöðinni.
Tugir brautarvinninga og bætt heilsa tryggja síðan öllum verðlaun með einum eða öðrum hætti.
Keppninni er stýrt frá Laugarvatnt, þar eru fyrsta flokks tjaldstæði, farfuglaheimili, hótel og hostel. Náttúrulindin á Fontana tekur vel á móti öllum og veitingastaðir allt pylsunum í Samkaupversluninni að fimm stjörnu veitingahúsum eins og Lindinni.
Mótstjórnin er á Laugarvatni og gríðarleg áhersla er lögð á öryggi keppenda. Á mótsvæðinu er læknir með búnað til minni aðgerða og á mótsvæðinu er einnig fullbúinn sjúkraflutningabíll og fjöldi björgunarsveitarmanna. Eftir alvarlegt slys í keppninni sumarið 2017 hefur þessi viðbúnaður verið aukin enn meira. Frá og með keppninni 2018 verða í fyrsta sinn lokanir og lögreglu með stærstu hópum keppninnar.
Upplýsingar
Keppnisgrein: Fjallahjólreiðar
Lengd:
Rástími: 1. okt 2020 kl: 00:00
Tegund: Almenningsmót
Flokkar
Almenningsflokkura
Mótaraðir
Íslandsbikarinn í tímaþrauta - 1.bikar
Íslandsbikarinn í götuhjólreiðum -
Nafn | UCI ID | Félag | ||
---|---|---|---|---|
Nafn | ||||
Jón Nýskráður | 3SH | |||
Nr: 1
Félag: 3SH
Flokkur: Almenningsflokkura
Stig: 0
|
||||
Páll Tímalausi | BFH | |||
Nr: 2
Félag: BFH
Flokkur: Almenningsflokkura
Stig: 0
|
Nafn | UCI ID | Félag | ||
---|---|---|---|---|
Nafn | ||||
Magga Félagslausa | 10010957142 | Utan félags | ||
Nr: 3
UCI ID: 10010957142
Félag: Utan félags
Flokkur: Almenningsflokkura
Stig: 0
|